Tröllaheimar

Fréttir
Stundarskrá

Álfaheimar

Fréttir
Stundarskrá

Hulduheimar

Fréttir
Stundarskrá

Dvergaheimar

Fréttir
Stundarskrá

Innskráning

Forsíða
Velkomin

Image

Leikskólinn Bergheimar
V/ Hafnarberg
815 Þorlákshöfn
Sími: 4833808
Fax: 4833809
Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Leikskólastjóri: G. Ásgerður Eiríksdóttir  Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Aðstoðarleikskólastjóri: Dagný Erlendsdóttir  Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það


Leikskólinn er þriggja deilda og opinn frá kl.07.30 til kl.17.00.
Vistunartíminn er frá kl:07.30 til -kl:12.00 og síðan klukkutíma lenging á viðveru alveg til kl:17.00. 

Boðið er upp á mat og hressingu allt eftir vistunartíma.

 
September fréttablað
Skrifað hefur Ásgerður   
miðvikudagur, 01 september 2010

                                                   September fréttablað      

Starfsmannahald

Nokkrar breytingar hafa átt sér stað í starfsmannahaldi Bergheima. Luidmila fór í árs leyfi, Daðey minnkaði niður í  50% vinnu og Svala Ósk, Ásta Kr. og Helena J eru komnar í 100% vinnu.  Við þessar breytingar færðust kennarar á milli deilda og er staðan þannig í dag að á Álfaheimum vinna: Þóra R deildarstjóri, Helena J leikskólakennari, Svala Ósk leikskólaliði, Ingveldur leiðbeinandi. Á Dvergaheimum Anna Kristín deildarstjóri, Ragnheiður María leikskólakennari, Daðey grunnskólakennari, Sandra Björk leiðbeinandi og Sjöfn leiðbeinandi. Á Hulduheimum Helena H. deildarstjóri, Ásta Kr. leikskólaliði, Hólmfríður leiðbeinandi og Katrín Ósk leiðbeinandi. Á Tröllaheimum Elsa deildarstjóri, Guðríður Anna leikskólakennari, Ingibjörg nemi, Margrét leiðbeinandi, Þóra D leiðbeinandi og Kim leiðbeinandi. Katrín fékk námsleyfi í 3 vikur og sinnir  Bergþóra Ólafsdóttir afleysingum á meðan.

Ný börn

Aðlögun nýrra barna  er að ljúka og hefur hún gengið  bara vel.  25 börn eru á Hulduheimum sem er þriðja árið í röð starfsrækt innan veggja grunnskólans.

Leikfimin

Fimmtudaginn 16. sept. byrjar leikfimin aftur og fara þá  börnin í íþróttahúsið í leikfimi. Mikilvægt er að þau  séu í þægilegum fatnaði sem þau geta farið úr og í  sem mest sjálf og án hjálpar. Börnin þurfa einnig að hafa með sér stuttbuxur sem verða geymdar í leikskólanum í vetur. Í vetur verður leikfimin á fimmtudögum í stað miðvikudögum sem hafa verið leikfimisdagar í mörg ár. Eins og venjulega þurfa börnin að vera komin í leikskólann fyrir kl 9.30 á fimmtudögum því ekki er hægt að taka á móti börnunum upp í íþróttahúsi.

Haustþing

Þann 24. sept. n.k. verður leikskólinn lokaður vegna haustþings. Haustþingið er fyrir  kennara og starfsfólk í öllum leikskólum á Suðurlandi. Kennararnir fara á námskeið á Selfossi en þar verður hægt að velja á milli nokkurra námskeiða.

Samstarf við 9-una

Líkt og í fyrra verður samstarf við íbúa á 9-unni (íbúðir eldriborgara)og einnig félagsstarf eldri borgara verður það með þeim hætti að farið verður í heimsóknir á 9-una í litlum hópum og eitthvað skemmtilegt gert og koma einnig eldri borgarar í heimsókn í Bergheima og lesa fyrir börnin. Fyrsta heimsókn er frá Hulduheimum á 9-una þann 6. september og fyrsta heimsókn í Bergheima frá Félagsstarfinu er 21. september. 

Taskan

Nú er sá tími að kólna fer og því nauðsynlegt að foreldrar yfirfari leikskólatöskuna og hafi hlý föt í henni.  Það er alltaf nauðsynlegt að hafa aukaföt sama hvort barnið er 2 ára eða 5 ára en það getur alltaf hellst niður eða þau blotnað.  Það er mjög leiðinlegt að þurfa að kalla foreldra úr vinnu vegna þess að það vantar aukaföt í töskuna. Einnig er nauðsynlegt að utanyfirfatnaður, skór og stígvél séu merkt börnunum en það auðveldar þeim og kennurum að vita hver á hvað en á einni deild eru kannski 4 Íþróttaálfastígvél öll númer 25. Hægt er að nálgast miða frá Rögn í leikskólanum til að panta og einnig á netinu.www.  rogn.is

Heimsókn frá dagmæðrum

Þær Hafdís og Halldóra dagmæður hafa óskað eftir því að fá að koma í heimsókn í söngstund einu sinni í mánuði í vetur og ætla þær að koma alltaf þriðja föstudag í mánuði.  Þetta er mjög skemmtileg samvinna á milli leikskólans og samfélagsins.

Ný fræðslunefnd

Eftir kosningar var kosin ný færðslunefnd þar sem Ásta Margért Grétarsdóttir var kosin formaður og Henný Björg Hafsteinsdóttir varaformaður, aðrir nefndarmenn eru Sigulaug B.Gröndal, Sigrún Huld Pálmadóttir og Katrín Ósk Hannesdóttir. Ásgerður og Ragnheiður María eru fulltrúar Bergheima í nefndinni.Vikan 1.-3. september

3. sept. Söngstund í sal og gulur litadagur þá mæta allir bæði kennarar og nemendur í einhverju gulu eða með eitthvað gult á sér.

Vikan 6.-10. september

6. sept. Hulduheimar fara á 9-una í heimsókn.

10. sept. Söngstund inn í sal

 

Vikan 13. -17. september

16. sept. Leikfimi hefst allir verða að vera búnir að koma með stuttbuxur.

17. sept. Söngstund inn í sal og dagmæður koma í heimsókn í söngstund.

Vikan 20.-24. september

21. sept. Fulltrúar frá Félagsstarfi eldri borgara í Ölfussi koma í heimsókn á Hulduheima.

23. sept. Leikfimi í íþróttahúsinu.

24. sept. Leikskólinn er lokaður vegna Haustþings kennarana.

Vikan 27.-30. september

27. sept. Hópur frá Hulduheimum fara í heimsókn á 9-una.

30. sept. Leikfimi í íþróttahúsinu.

                                                                                                                       Kveðja  Dagný aðstoðarleikskólastjóri

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 01 september 2010 )
 
Júli fréttabréf
Skrifað hefur Ásgerður   
mánudagur, 05 júlí 2010

Júlí fréttablað 

Unglingar úr vinnuskólanum

Í sumar eru 11 unglingar að vinna í leikskólanum fram að sumarfríi. Átta eru hálfan daginn og þrír eru allan daginn.   Þau eru Þóra Björg og Þórir á Álfaheimum, Anna María, Guðjón Axel, Stefanía Ásta og Jón Jökull á Hulduheimum, Halldór Rafn, Magnús Þór og Silwia á Tröllaheimum og á Dvergaheimum eru Sunna Ýr og Ómar Örn. Þau taka virkan þátt í daglegum störfum bæði úti og inni. Það er gaman að hafa  unglinga í vinnu og börnin eru mjög hrifin af þeim.

Grill og hjóladagur

Grill og hjóladagur tókst mjög vel, lögreglan hafði því miður ekki tök á að koma í heimsókn þennan hjóladaginn. Í hádeginu var svo boðið upp á grillaðar pylsur.  Það rættist úr veðrinu  og varð mjög hlýtt eftir hádegi.

Sumarfrí

Sumarfrí í leikskólanum er frá miðvikudeginum 7. júlí til 11. ágúst. Þann 11. ágúst verður starfsdagur og börnin mæti ekki þann dag en á þessum starfsdegi skipuleggja kennarar vetrarstarfið. Þann 12. ágúst mæta börnin í leikskólann. 

 Starfsmannahald

Eftir sumarfrí verða miklar tilfærslur á starfsfólki milli deilda og verður það kynnt betur þegar við komum aftur til starfa eftir sumarfrí. 

Póstkassi

Póstkassi er  á öllum deildum þar sem börnin geta komið með bréf/kort/myndir að heiman og sagt frá því hvað þau voru að gera. T.d  ef þau eru að fara í útilegur eða gera eitthvað skemmtilegt heima hjá sér um helgar sem þau vilja deila með hinum krökkunum. Þetta auðveldar yngstu börnunum að ræða um það sem þau hafa verið að gera.

 Merkingar á fatnaði og skóm

Enn og aftur þarf að minna foreldra á að merkja alla skó og útifatnað barnanna, s.s húfur, buff, vettlinga, regngalla.  Mikið er um að börnin séu í eins skóm og regngöllum og er nauðsynlegt að hafa þetta allt merkt.

Vikan 1.-2 júlí

2. júlí er síðasti dagur hjá yngstu unglingunum  sem eru í vinnu í Bergheimum.2. júlí er sameiginleg söngstund hjá öllum deildunum.

 

Vikan 5.-6. júlí

6. júlí er síðasti dagurinn fyrir sumarfrí.

 

Kveðja Dagný aðstoðarleikskólastjóri 

Síðast uppfært ( mánudagur, 05 júlí 2010 )
 
Skólastefna Ölfus samþykkt
Skrifað hefur Administrator   
sunnudagur, 20 júní 2010

Bæjarstjórn Ölfus hefur samþykkt skólastefnu fyrir Sveitarfélagið Ölfus.

Smelltu hér til að skoða skólastefnuna.

 
Júní fréttabréf
Skrifað hefur Ásgerður   
fimmtudagur, 03 júní 2010

 Júní fréttablað 

Tónlistarskólinn

Í maí heimsókn tónlistarskólans kom Robert Darling með nemendur sína þau Daníel Orra á althorn, Jakob Unnar á barítónhorn, Sigrún Sól á trompet, Sigrún Elfa á kornett og Birta einnig á kornett og Bergrún á klarinett. Þetta var síðasta heimsóknin í vetur og verður svo vonandi  framhald í haust  á þessum heimsóknum.

 Sumarskipulagið

Á hverri deild er hafið sumarskipulag og hefur það sjaldan verið vandaðra en mikil áhersla er lögð á vettvangsferðir og unnið með næsta nágrenni svokallaða grenndarkennslu. Verkefni verða færð eins mikið út og veður leyfir. 

 Samstarf við félagsstarf eldriborgara

Í maí komu á  þær Erla Markúsdóttir  á  Álfaheima  sagði sögur og á Dvergaheima  Hólmfríður A Jónsdóttir og las skemmtilega bók um litina. Sama dag fór hópur af Tröllaheimum  á 9-una og hitti Hilmar sem sagði þeim skemmtilegar sögur og sýndi þeim ýmislegt dót.

Gjöf frá foreldrafélaginu

Á vorhátíðinni gaf  Foreldrafélag Leikskólans Bergheima flotta gjöf en það er viðbót við numicon sem við  eigum. En fyrir þá sem ekki vita er numicon  stærðfærði kennsluefni sem notað er í Bergheimum. Þökkum við kærlega fyrir þessa góðu gjöf.

 Heimsókn í grunnskólann

Börnin sem eru að fara á Hulduheima í sumar var boðið í mat í grunnskólanum þann 19. maí. gekk sú heimsókn mjög vel. Inga og Guðfinna matráðskonur í skólanum tóku á móti þeim en kennararnir á Tröllaheimum fylgdu þeim og voru með þeim á meðan heimsóknin var.

 3. bekkur Grunnskólans í Þorlákshöfn heimsækir Bergheima

Nemendur úr 3 bekk ásamt kennara sínum Önnu Sólveigu Ingvadóttur heimsóttu leikskólann í þeim tilgangi að lesa fyrir leikskólanemendur. En þetta er hluti af grenndarkennslu  tókst þetta vel og er  áhugi  fyrir því að reyna að gera þetta aftur. Mikil fjölskyldutengsl komu í ljós í þessari heimsókn og áttu fleiri en færri systkini í leikskólanum, eða þá mömmu eða ömmu.

Ný börn

Aðlögun nýrra barna er hafin og stendur hún til haustins, mikið er um að elstu börnin hætta ekki fyrr en um sumarfrí því er ekki hægt að taka ný börn inn fyrr en eftir sumarfrí. 

Sólarvörn

Þegar sólin skín  er nauðsynlegt að foreldrar beri sólarvörn á börnin sín áður en þau koma í leikskólann og gott er hafa sólarvörn í leikskólatöskunni svo hægt sé að bera aftur  á börnin eftir þörfum.

Tilkynna frí

Mikilvægt er að tilkynna alltaf þegar börnin eru í fríi eða eru veik. Þarf þá  ekki að bíða eftir þeim ef verið er að fara í gönguferðir eða í aðrar vettvangsferðir.

Fundur vegna barna sem eru fædd 2005

Fundur var með foreldrum barna sem eru fædd 2005 og eru að flytjast í Hulduheima sem er staðsett í grunnskólanum.    Skilafundur, milli skólastiga, fór fram 18. maí og skilaði deildarstjóri til væntanlegs kennara fyrstabekkjar upplýsingnum er málið varða um verðandi fyrstu bekkinga.

 Starfsfólk að útskrifast

Svala Ósk Sævarsdóttir útskrifaðist sem leikskólaliði frá Borgarholtsskóla 21. maí sl. og óskum við henni innilega til hamingjuHelena Jóhannsdóttir mun útskrifast frá Háskólanum frá Akureyri 13 júní nk.

Lambaferð

Börnin fengu að heimsækja þau Garðar og Diddu í hesthúsið þeirra og skoða þar nýborin lömb og klappa honum Sokka hestinum hans Garðars.Færum við þeim bestu þakkir fyrir það að leyfa okkur að koma. 

Leikskólabörn syngja

Áætlað er að börnin syngi við opnun ljósmynda sýningar við Selvogsbrautina þann 2. júní kl 10.30.

Hundasteinn

Hundaeigendur athugið að þrífa upp eftir hundanna ykkar við hundasteininn.

Hjóla- og grilldagur

Hjóla- og grilldagur verður haldin áður en leikskólinn fer í frí og verður notaður einhvern góðvirðisdagurinn í hann. Börnin mæta með hjólin sín og hjálm, í hádeginu verða grillaðar pylsur handa öllum.  Verður hann auglýstur með dags fyrirvara.

Sumarfrí

Sumarfrí í leikskólanum er frá miðvikudeginum 7. júlí til 11. ágúst. Þann 11. ágúst verður starfsdagur og mæta börnin ekki þann dag en á þessum starfsdegi skipuleggja kennarar vetrarstarfið. Þann 12. ágúst mæta börnin í leikskólann.  

Vikan 1.júní-4. júní.

2. júní börnin að syngja kl 10.30 við opnun ljósmyndasýningar á Selvogsbrautinni.4. júní er komið að appelsínugulum litadegi þá væri gaman ef allir mættu bæði börn og kennarar í einhverju appelsínugulu eða með eitthvað appelsínugult á sér.4. júní söngstund börnin hittast öll inn í sal eða lautinni og syngja saman.                               

Vikan 7.júní -11. júní.

7. júní unglingarnir í vinnuskólanum byrja að vinna og vinna fram að sumarfríi..8. júní hópur af Tröllaheimum að  fara á 9-una og Hulduheimar fá heimsókn frá félagsstarfi eldriborgara.

Vikan 14. júní -18. júní

17. júní þá er leikskólinn lokaður.

Vikan 21. júní -25. júní

Sumarskipulagið er á fullu alla dagana.

Vikan 28. júní -30. júní

Sumarskipulagið er á fullu alla dagana.
                                                                                                Með sólarkveðju Dagný aðstoðarleikskólastjóri
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 03 júní 2010 )
 
Drög að skólastefnu Sveitarfélagsins Ölfuss
Skrifað hefur Administrator   
sunnudagur, 30 maí 2010

Til íbúa Ölfuss


Drög liggja nú fyrir að skólastefnu Sveitarfélagsins Ölfuss. Starfshópur sem skipaður var af bæjarstjórn í október á síðasta ári hefur unnið þau í góðu samráði við fjölmarga hagsmunaaðila skólamála. Drögin eru hér með birt á heimasíðu sveitarfélagsins, Grunnskólans í Þorlákshöfn og Leikskólans Bergheima og er unnt að senda inn athugasemdir og ábendingar til 2. júní nk. á netföngin Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það og Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Smellið hér til að skoða drögin.

 

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 5 af 53

Skóladagatal

« < Ágúst 2010 > »
M Þ M F F L S
26 27 28 29 30 31 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 1 2 3 4 5
« < September 2010 > »
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Fréttabréf

Skráðu þig á póstlistann til að fá send fréttabréf Bergheima